Vestfirsku víkingarnir
29.12.2006 22:24:25 / mattivilla

Myspace

kallinn er kominn með myspace.com/mattivilla... bara vildi láta ykkur vita... Mun kannski blogga þar en þessi síða hefur því miður örugglega runnið sitt seinasta skeið... kv. Matti Villa

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 11:51:28 / mattivilla

Vídeó

Tékkið á þessu... http://www.youtube.com/watch?v=Om4S4dSyH58

og svo þessu líka http://www.youtube.com/watch?v=QCxhmGk3k6Y

Það vildi svo skemmtilega til að ég var með upptöku í gangi á símanum mínum þegar þessum ungu herramönnum varð e-ð heitt í hamsi eftir vippó í vinnunni!! Þeir sem þekkja þessa pilta ætti að þykja þetta ansi skondið... Addi Fannar gjöriði svo vel...


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 00:17:34 / mattivilla

Ótrúlegt en satt, nýjar myndir!!

Ég ákvað að skella inn myndum sem ég tók á símann minn bara svona til gamans... Aldrei að vita hvort ég skelli inn einu bloggi bráðum!

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 12:18:48 / mattivilla

Athugið

Ég hef ákveðið að leggja bloggskónna á hilluna. Ég hef engan tíma til að sinna þessu í bili og nú er bara að sjá hvort Birkir fari eftir mínu fordæmi, það verður bara að koma í ljós! Eigið drullugott sumar ! Góðar stundir, Matti Villa

» 11 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 16:03:58 / mattivilla

Fyrstu myndirnar komnar í hús :)

Ég ákvað að skella örfáum myndum inn svona í fyrsta skipti... Svo er Birkir líka að fínpússa myndavélamálin þannig að fleiri myndir eru væntanlegar!! Eins og e-r fugl sagði: ,,Myndir eru minningar.."!!

Annars á ég eftir að setja inn fleiri... þetta er bara brotabrot af því besta..

www.picturetrail.com/matvil

Endilega kommentið á þær..

Over and out


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 15:01:39 / mattivilla

Sumarbústaðaferð!

Nú á föstudaginn var ákváðum við, hið fríða föruneyti,  Robocop, Ég, Fannsio, Frodo, Árni Freyr, Pési Vidd, Addi, Haukur Ó og Toni Sig að skella okkur í smá road trip yfir hvítasunnuhelgina. Förinni var heitið á Borgarholt á Snæfellsnesi þar sem fjölskyldan hans Pésa á þetta líka ruddalega sveitabýli með öllu tilheyrandi. 90 mínútna akstur og við vorum komnir í sveitasæluna og við gátum heyrt saumnál detta, veðrið var það gott! Svefnpláss fyrir nokkra tugi þarna og líka þessi flottu hjónarúm. Mér hlotnaðist sá heiður að gista í sama bedda og Haukur Ólafs.

Margt var hægt að gera sér til dundurs, svo sem fara í fóbó, körfubolta, borðtennis, pottinn og rúsínan í pylsuendanum var að fara á fjórhjól sem ég var að prófa í 1. skipti og by the way þá var það þokkalega geggjað... Manni leið eins og maður væri að keyra á 100 km hraða þegar maður var í raun að keyra á 50 km hraða.. merkilegt nokk það!

Þó að við klikkuðum á að taka poker settið með þá náðum við að skemmta okkur konunglega og við enduðum ferðina á dýrindis grillmáltíð þar sem grilluð var rudda tudda nautalundasteik með dijon sinnepssósu og meðlæti sem var sannkallað GOURMET!!

Svo var tekið 3 á 3 mót í körfu uppá uppvaskið sem endaði þannig að Árni Freyr missteig sig heiftarlega og þurfti að hætta enda maðurinn í afar slæmu ástandi! Þannig að við fórum heim í gærkvöldi, vorum bara eina nótt því það var æfing í morgun og leikur á morgun! Hefði alveg til í að vera lengur en svona er þessi bransi....

Pétur fær mjög stórt spect fyrir að leyfa okkur að koma og er hetja dagsins!

Í dag ætla ég nú bara að vera rólegur, kíkja kannski í sund og fara út að borða í kvöld, hver veit? Kemur í ljós....

Um von um góðar stundir!

Matti Villa


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 18:09:49 / Birkirsv

Sumarið að byrja ...

Já, það er svo sannarlega kominn tími á blogg á þessa síðu okkar ... Ég tók mig því til og ákvað að blogga eitt stutt blogg....
En það sem er að frétta af mér er að ég mun spila í hafnarfirðinum í sumar, kom hingað á föstudaginn ásamt Lindu, lögðum að stað fyrir hádegi og vorum komin seinnipartinn ...
Búinn að mæta á 2 æfingar og alveg morgunljóst að maður þarf að taka sig vel á, koma sér í svona helmingi betra form, en það er allt í undirbúningi.

En helgin var fín, kíkti í bíó með Lindu á The da vinci code ... Hafði heyrt að hún hefði fengið slæma dóma úti, en mér fannst hún samt alveg góð, fyrir utan hve fáránlega löng hún var ... Það ætti að banna að hafa myndir svona langar ....

En sunnudagurinn var ekki jafn góður, lá allan sunnudaginn handónýtur með þessa vinsælu flensu sem svo margir eru búnir að næla sér í undanfarið ... Mæli enganveginn með henni!! Er samt að hressast núna og held að maður taki fyrsta vinnudaginn á þetta á morgun ... Ekkert meira spennandi en að kíkja í vinnu...

Svo gerðust reyndar stórtíðindi um helgina, Bí/bolungarvík tóku bara öll 6 stigin sem í boði voru!! Það er ekkert minna, og óska ég þeim bara til hamingju með það!

En núna ætla ég aðeins að kíkja á hlxnur, láta hann sýna mér nýja "leiktækið" sitt ! ...

kveð í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 13:37:44 / mattivilla

Enginn titill!

Loksins eru prófin búin maður! Kláraði í gær 2 sjúkrapróf vegna utanlandsferða uppá síðkastið og ég er þá búinn með 11 stykki . Þessi prófatími var ekkert spes en nú koma nýjir tímar með tilheyrandi skemmtun. Hefði samt viljað að veðrið sem er núna hefði verið í prófunum í staðinn fyrir bongóblíðuna um daginn. Hvað er málið með veðrið á þessu landi?

 

Erum komnir með 6 stig eftir 2 leiki í mfl en höfum ekkert spilað neitt voða vel en 2 sigrar tala sínu máli á móti ágætis andstæðingum. Næsti leikur á fimmtudag gegn Skaganum í Kaplakrika.

 

 Svo var líka fyrsti leikur í íslandsmótinu í 2. flokki í gær á móti Val. Leikurinn var spilaður í Kaplakrika og var skítkalt og völlurinn harðari en mölin á Torfnesi í dentid! Unnum 2-0 í leik sem var ekki mikið fyrir augað en sigur er aðalatriðið er það ekki? Maður leiksins var Jakob línuvörður, þið vitið af hverju þið sem sáu leikinn! Ég hann úr free kick af góðu færi, gaman þegar svoleiðis gerist. Og Robbi markmaður líkti mér við Juninho!! Nei alveg róleg... Robbi var solid like always og átti nokkrar rudda markvörslur, þá sérstaklega þegar hann varði aukaspyrnu á seinustu stundu!

 

 Gummi er mættur í bæinn og ég er að fíla það. Hann ætlar að meika það með Ahandour og félögum í Grindavík! Hef fulla trú á stráknum...

 

 Svo fer ég að vinna bráðlega á vellinum á Kapla... þar eru margir fagmenn og verður eflaust glatt á hjalla þar.. ég ætla samt að taka mér smá hvíld og svo mæti ég ferskur til leiks í vinnuna..

 

Ég ætla ekki að ræða Eurovision, sorrí people out there... en ég fór hins vegar á lokaball Versló á seinasta fimmtudag. Það var haldið útí sveit eða réttara sagt í Hlégarði, Mosó! Frábært ball og ég er ekki frá því dansskórnir hafi slitnað... Fínt að enda skólaárið með stæl og núna bíð ég bara eftir einkunnum sem ég fæ á morgun..

 

 Lag dagsins: Don’ give up með Bono og Aliciu Keys, einfaldlega geggjað lag!!

 

 En ég er farinn að gera e-ð við daginn, sauma eða prjóna eða e-ð...

 

 Later!


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 23:35:40 / Birkirsv

17 Maí

Já loks kom að því að ég tók mig saman í andlitinu og bloggaði eitt stutt blogg eða svo ... Það hefur á ýmsu gengið síðustu daga ... Búinn að taka kylfurnar fram og búinn að prófa golfið, sem er bara snilld, spila fótboltaleik sem hefur ekki gerst í marga mánuði og margt fleira...

En eins og ég sagði fór ég í golf um daginn í Bolungarvík og var það bara aðeins of gaman, þó svo að völlurinn sé ekkert frábær var samt gaman að slá... Spilaði líka þokkalega miðað við margra mánaða frí, var 7 yfir og telst það ágætt held ég bara

En já, ég spilaði æfingaleik með gömlu köllunum og Gumma Atla í gær við nýja sameinaða lið Ísfirðinga og Bolvíkinga ... Var það gaman að fá loks að spila leik, en það slæma við þennan leik var að ég tognaði bæði í nára og í hnénu ... Frekar mikil óheppni það ... Gat ekki sofið neitt í nótt og endaði á að kíkja til læknis 9 í fyrramálið og vildi hann meina að þetta væru tognanir ... Vona svo sannarlega að þetta sé ekki alvarlegra en það ... En í hálfleik var staðan 2-2 sem ég verð að segja var frekar gott hjá okkar mönnum, miðað við að meðalaldurinn var örugglega 35 ára og með markmann sem hafði aldrei spilað mark held ég áður, og kom það glögglega í ljós þegar á reyndi, en hann stóð sig samt ágætlega miðað við að hafa aldrei verið í marki áður... En svo hættu menn að spila að viti, hættum að spila skipulagið sem var í fyrri hálfleik og þá klikkaði allt ... Fengum á okkur samanlagt 5 klaufamörk í leiknum, en leikurinn endaði 6-3 held eg fyrir BÍ/BOL  ... En þrátt fyrir það var þetta ágætis skemmtun, þó ég hefði auðvitað frekar viljað vinna ....

FH-ingar byrjuðu aldeilis vel í deildinni, rúlluðu yfir KR-ingana 3-0 takk fyrir ... Bjóst samt við Matta í hóp eins og flestir aðrir held ég, en hann verður það vonandi í næsta leik strákurinn ... Guðmann samt klárlega maður vikunnar, spilaði eins og kóngur gegn völsurunum og skoraði í þokkabót!! Ekki slæm byrjun hjá drengnum! Tala ekki um að hann lét lýsendur leiksins bara heyra það í viðtali eftir leikinn ... Færð prik fyrir það

En ég blogga ekki meira í bili, er að fara í sjúkrapróf á morgun svo ég verð nú að halda áfram að læra ... Kveð í bili, Matti, þú átt leik


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 16:08:03 / mattivilla

yeah yeah

Ég ætla að skella einni punktafærslu í tilefni dagsins!

 

  • 6 próf búin
  • 5 eftir L
  • Middlesboro – Sevilla í kvöld, ég spái 2-1 fyrir Middlesboro, Chris Riggott og Hasselbaink skora og Daniel Alves fyrir Sevilla! Ef þetta fer svona þá skuldar Árni Freyr mér pulsu og trópí!
  • Eigum við nokkuð að ræða veðrið seinustu daga? Eitt orð,Geggjað!!
  • Ég er búinn að fara í sund og fá mér icecream álíka oft og leiðarljósþættirnir eru margir!
  • Fjárfesti í nýjustu Red Hot Chili Peppers plötunni í dag, er búinn að hlusta á 5 lög og ég verð að segja að hún lofar góðu...
  • Á föstudaginn er úrslitaleikur í 2. flokknum í faxaflóamótinu, ég fæ að spila sem er gott mál... Birkir farðu síðan að drulla þér suður til mín!
  • Á sunnudaginn hefst svo landsbankadeildin og byrjum við í Frostaskjólinu á móti KR. Það verður eflaust góð stemmning og ég vona að maður fái að spreyta sig e-ð!
  • Fjölmennið svo á mánudagskvöldið á Ásvelli og tékkið á Johnny Ragg og Bibba Páls... Haukar-Þróttur R... Spect á ykkur
  • Lokaballið er 18. maí, spurning hvort maður fari og dansi af sér skónna... nei ég segi svona... jú ætli maður kíki ekki! Burger á ekki að koma með?
  • BÍ og Bolungarvík eru búin að sameina og ef rétt er haldið á spilunum eiga þau klárlega að vera í baráttu um að komast upp... Spect á Sigurgeir fyrir að setjann svona oft í síðustu leikjum! 

En ég er farinn að læra undir sögupróf. Sjáum til hvenær næsta blogg verður... 

 

Kv. MattiVill


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 23:08:33 / Birkirsv

Það er kominn miðvikudagur!

Já kominn tími á smá færslu eða svo ... Vá hvað ég er búinn að vera sáttur með veðrið núna uppá síðkastið, bara sól og blíða ef svo má segja!! Vona bara að það verði hægt að fara að slá golfkúlur fljótlega, er orðinn geggjað spenntur fyrir því!!

En Matti byrjaði inná í dag með u-21, en ekki hvað!!  Það voru nú fleiri hetjur en hann sem byrjuðu, Davíð, Bjarni og Guðmann svo maður telji upp einhverja... En Matti  hlítur að hafa staðið sig ágætlega drengurinn þó ég viti það ekki, en því miður tókst honum ekki að skora og endaði leikurinn eins og flestir vita 0-0 ... Til hamingju samt Matti min!

En núna eru prófin byrjuð, ekkert það skemmtilegasta í heimi, en þau taka enda fyrr en varir og verður haldið uppá það með einhverjum hætti, hver hann verður veit ég ekki :)

En af mér er fátt að frétta, gerist fátt hjá mér .... Er samt að komast í mitt besta form svo það er bara af hinu góða.... Sá samt á blogginu hans Eyþórs að hann ætli ekki til spánar í 3 bekkjar drykkjuna, og er ég alltof stoltur af stráknum, loks sigraði skynsemin drykkjuna hjá honum!! :D

Langar líka að biðja Kolbein afsökunar á að hafa látið hann tapa rosalega á mér á laugardaginn, áttir bara ekki að veðja svona vitlaust kallinn minn!!

OOOg alveg í lokin verð ég að nefna það að BÍ rúllaði yfir Víkarana rétt áðan, ekki nema 5-2 takk fyrir!! Til hamingju strákar!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 19:44:30 / Birkirsv

hvaða hvaða hvaða ..

Já ég hef ákveðið að fara að ósk Matta og taka eitt blogg eða svo .... Nú er kominn sunnudagur, sem er einmitt lang leiðilegasti dagur vikunnar ....

Smá frétt samt af honum, hann var auðvitað eina hetja FH og skoraði mark úr víti i vítakeppninni við Færeyjingana .. Ekki að spurja að því enda vel reyndur vítakappi!!

En á föstudaginn var lokaballið í MÍ haldið, ásamt því að krakkarnir fæddir 86 voru að dimmitera ... Mætti i skolann klukkan 8 og var buinn korter yfir og þá kikti maður bara aðeins heim og síðan uppeftir aftur til þess að kíkja á krakkana alveg bleeekaðir ... Svo kíktum við Linda bara heim til hennar og vorum þar …. Svo síðar um kvöldið eða um 10 var kíkt í party inní golfskála, þar var folk vægast sagt vel í því, og var maður frekar asnalegur edrú .. En það er svosem ekkert nýtt …. Við Linda nenntum svo ekkert á ball eins og stefnan var sett á svo við forum bara heim fyrir 2! Þrátt fyrir að hafa farið snemma heim var þetta ágætis kvöld ..

Á laugardaginn var lítið gert ... Legið í leti alveg allan daginn held ég bara ! :S ..  Bökuðum reyndar rjómabollur sem voru aðeins of góðar ... Ég búinn að væla um að gera þær örugglega alveg síðan á bolludag.... En um kvöldið var bara tekin spóla og sofnað yfir henni ..

Svo núna er kominn sunnudagur .... Við strákarnir kíktum í bolta áðan þar sem Helgi Dan var valinn maður dagsins  ... Hann leynir á sér kappinn!!:D En núna er ég bara að borða, sit við matarborðið að blogga ... Það aldrei gerst áður :) ... En ég bið að heilsa í bili...


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 20:44:57 / mattivilla

Athugið

Ég fer í mitt annað próf á morgun, stúdentspróf í markaðsfræði og svo held ég beinustu leið út á rvk flugvöll því FH er að fara að spila gegn B36 í orrustunni um Atlantshafið... Kem svo heim á sunnudagskvöld og fer aftur á mánudagsmorgun til Andorra og kem heim á fimmtudaginn... Daginn eftir það er stúdentspróf í þýsku þannig að þetta verður gríðarlega erfið vika :S

Þess vegna ætlar Birkir að halda áfram að skrifa pistla... Þeir sem þurfa að ná i mig hringja bara.. er með símann með í för!

Blessuð


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 10:39:25 / Birkirsv

Þriðjudagur til þreytu

Já sæl veriði ..... Já ég bara að blogga í annað skiptið í röð, bara allt að gerast !! En af mér er flott að frétta ... Er reyndar ógeðslega þreyttur í dag, og vil ég kenna ýmsu um, t.d. því að maður er vakinn fyrir allar aldir til þess að vakna í skólann, þó ég standi ekki upp fyrr en hálf 8 á morgnana er Linda alltaf vöknuð 06:45 sem ég mun seint skilja, því það er ALLT of snemmt ....

En í gær var fyrsti dagurinn í massa prógramminu ... Addi mosi var auðvitað með eina af sínum vinsælu afsökunum og beilaði á mér!! Farðu að taka þér tak strákur, mánuður til stefnu!! En ég og Ívar suðureyringur tókum vel á því, hlupum frá stúdioinu og alla leið inná brúarnesti ... tíminn reyndar mjög slæmur, tæpar 28 mín ... En þetta er byrjunin ... Við hljótum að bæta okkur von bráðar ... En eftir það var tekið vel á því í stúdioinu og vottar því fyrir smá harðsperrum :)

En eins og er er ég bara í tíma að láta mér leiðast ... Datt bara allt í einu í hug að blogga eitt stutt blogg í tilefni dagsins! En mæli með að fólk tékki á hetjunni okkar, hún klárlega að meika það! http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=34655

En takk fyrir mig


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 18:58:56 / Birkirsv

Sólin er komin!!

Já mikið rétt, þið lásuð rétt  .... Það er loks farið að sjást til sólar, kannski því sumardagurinn fyrsti er búinn eins og flestir vita og er þá auðvitað kominn tími til að sólin láti sjá sig, ekki eins og hún sé búin að gera alltof mikið að því hingað til !! ... En allavega ég er ánægður með veðrið núna :)

Já nú er kominn 22 apríl sem segir mér að það er stutt í margt, stutt í próf, stutt í sumarfrí o.s.frv..... Ég get ekki sagt að ég sé e-ð svakalega spenntur fyrir þessu öllu en ég tíminn líður jú eins og við flest vitum ... Alltof hratt ef ég á að segja mína skoðun...

En ég ákvað fyrir helgi að búa mér til viku æfingarprógram !! Það er rosalegt og get ég ekki beðið eftir að byrja ... Ætla ekki að snerta bolta alla næstu viku, ætla bara að hlaupa eins og vitleysingur og lyfta, allir þeir sem nenna að fara í þetta ruddalega prógram með mér segja mér frá því!:)

En um helgina er maður fátt búinn að gera, bara leigja video og liggja í leti ... Ég og Linda samt búin að fara 2x í sund, í gær og í dag, og er það búið að vera mjög gaman, sérstaklega því við tókum prakkara frænku hennar hana Ylfu með, og vááá hvað hún er erfið :D haha ... En samt ótrúlega skemmtileg auðvitað!:) ...

En ég sem ætlaði að blogga miklu meira, en það er verið að kalla í mig og reka mig í mat ... en Matti þetta er bara fyrir þig því þú ert svo mikill sælkeri ... Það er grill í matinn hjá mér! ! !

Bless bless ..


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5